Færsluflokkur: Bloggar
Mín fékk brauð með súkkulaði í dag, það var vinsælt... Maður er orðin svo svakalega sjálfstæður að það þarf sko enga hjálp til að borða - þvert á móti - maður borðar ekki nema maður fái að borða sjálfur!!! Oftast er útkoman þá sú að það þarf að þvo fötin, borðið, gólfið, stólinn... og skella dömunni síðan í bað.... það finnst henni sko ekki leiðinlegt!
Mátti til með að setja þessa mynd inn af bjútíinu mínu...
Bloggar | 1.11.2008 | 21:54 (breytt kl. 21:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
An American said:
"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and Johnny Cash"
An Icelander replied:
"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope and no Cash"
(heyrði hann á ónefndum stað)
Bloggar | 31.10.2008 | 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér er hægt að skoða brot af þeim myndum sem verða til sýnis í Skrúðgarðinum.
http://www.flickr.com/photos/emiliairis/
Bloggar | 28.10.2008 | 12:49 (breytt kl. 12:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú sitjum við súpunni í,
og skiljum svo ekkert í því
að blindni í neyslu og neytenda veislu
er ekkert sem framtíð er í.
Borð mitt ber lífsgæða brauð
beikon og fjölskyldu auð.
Mér hagnast það best að vera sem mest
með þeim sem ég elska ósnauð.
Framtíðin færir oss eitt
frá fornöld er árið var feitt
og ástin og sælan var olíubrælan
frá lampa sem lýsti ekki neitt.
Hugur og heilsa hvers manns
er handritið lífsins og dans,
sem fortíðin færir og framtíðin lærir
að nýta með lógískum sans.
Nú skulum við standa á ný
því súpunni sitja þeir í
sem eru á hnjánum og kollháum lánum
því peningar vaxa ekki á trjánum.
- et
Bloggar | 22.10.2008 | 15:41 (breytt kl. 23:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina:
Klippari
Line Producer
Sölumaður í fiskivagni
Testaði ISDN innstungur
Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
The Elephant Man - David Lynch
Mary Poppins - Robert Stevenson
Bride of the Monster - Ed Wood
Edward Scissorhands - Tim Burton
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjavík
Hafnafjörður
Aarhus
Blöndós
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
My name is Earl
Dexter
How I met your mother
Fresh Prince of Bell Air
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríjum:
Slóvenía
Spánn
Belgía
Ísland
Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan bloggsíður:
Facebook
mbl.is
imdb.com
2-pop.com
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
Spaghettí og hakk
Mangóchutney kjúkklingarétturinn hans Matta
Súkkulaðikakan hans Kela
Klassíska sunnudagssósan hennar mömmu
Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Fréttablaðið
Monitor
Final Cut Pro user manual
Dagbókin mín
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Í nuddi.
Úti á svölum á hótel Trojane í Slóveníu með einn kaldan.
Áhyggjulaus á vindsæng útí sjó einhversstaðar þar sem er mátulega heitt.
Einhversstaðar þar sem Matti væri að fikta í hárinu á mér.
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Gígja
Mamma
Gréta systir
Helga B Jones
Bloggar | 15.9.2008 | 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, það er liðinn nokkur tími frá síðustu færslu, það svosem kom mér ekkert á óvart. Ég hef greinilega ekkert ekkert að segja... Ég er byrjuð að vinna aftur, orlofið var æðislegt. Við Gúa Dögg kúrðum og knúsuðumst alveg heilan helling. Annars var lítið annað gert. Hún er byrjuð í ungbarnasundi og líkar vel. Annars er hægt að skoða fleiri myndir á flickr síðunni minni, slóðin;
http://www.flickr.com/photos/superbeta
Nóg í bili...
Bloggar | 22.1.2008 | 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjötugur og enn ekki orðinn fullorðinn!
Mér finnst ég heppin að eiga svoleiðis afa, og mér finnst dóttir mín líka heppin að eiga svoleiðis langafa.
Það er hægt að lýsa afa sem "Hörku manni". Hann gerir allt rétt og hann kann að njóta lífsins. Hann á flottan feril að baki sem bankastjóri, en er núna farinn að leika sér daginn út og daginn inn...
Afi er gæddur mörgum góðum kostum og þá finnst mér standa uppúr hvað hann er glaðlyndur og vitur. Hann er listunnandi og nautnaseggur ( alveg eins og ég ) en það sem mér finnst æðislegast við afa, er að hann er enn ekki orðinn fullorðinn. Þá er ég að tala um þær frábæru staðreyndir, að hann spilar ofbeldisleiki í tölvunni af fullri innlifun, hann er "tækjafrík" og hann getur endalaust hlegið af kúkabröndurum.
Afi, ég á margar góðar minningar með þér, og hlakka til að dóttir mín eignist það líka. Ég met það alveg einstaklega mikils hversu duglegur þú varst að hafa samband við mig þegar ég bjó í Danmörku, ég þurfti á því að halda.
Það er gott að vera komin heim og geta heimsótt þig og ömmu oftar en ég gat þá. Ég hlakka líka til þess að þú farir að sýna Gúu Dögg gömlu góðu töfrabrögðin og leika við hana, ég man hvað mér fannst það gaman!
Elsku afi, þú ert alveg æðislegur og til hamingju með afmælið!
Kveðja frá gullmolanum hans afa.
Bloggar | 24.10.2007 | 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 14.10.2007 | 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í gær á röltinu um Hafnarfjörðinn fengum við Gúa Dögg alveg frábæra hugmynd, og það tók okkur ekki langan tíma að sannfæra Matta um að við þyrftum líklegast að kaupa okkur myndavél... Canon EOS 400d, engin smá vél! Nú er sko meira en nóg hjá okkur að gera í orlofinu að taka myndir og fleiri myndir!
Bloggar | 13.10.2007 | 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nútímakonan er nú nánast skyldug til að skrifa fæðingarsöguna sína þegar hún er búin að ganga í gegnum það að eignast barn. Helst á að koma fram í henni að fæðingin hafi farið fram á náttúrulegan hátt... maður er ekki maður með mönnum nema að maður notist eingöngu við náttúrulegu deyfingarnar, nálastungur, vatn og þá í mesta lagi glaðloft. Helst á konan síðan að standa upp úr fæðingarrúminu og skokka heim með barnið á öxlinni. Þetta hljómar ekki illa og ég myndi á hvaða degi sem er velja þessa leið fram yfir tveggja sólahringa fæðingu, sársauka og þreytu með deyfingunni og síðan meiri þreytu eftir erfiðið... Ég ætla nú ekki að skrifa fæðingarsöguna, heldur ætla ég aðeins að skrifa um tímann eftir fæðinguna.
Þetta er alveg yndislegur tími, ekki spurning um það, en þetta er líka tími þar sem maður lifnar við á ný. Á meðgöngunni er margt sem breytist hjá manni. Maður þarf að passa að reyna ekki of mikið á sig, bæði líkamlega og sálarlega. Á þessum níu mánuðum nær maður að breytast svakalega mikið en bara lítið í einu, þannig að uppgötvunin er mikil þegar maður breytist hratt "tilbaka". Það er ekkert lítið gaman að uppgötva að maður býr alveg yfir smá húmor og er ekki svona viðkvæmur í raun og veru.
Þegar maður er óléttur þarf sko ekki mikið til, til að ná manni úr jafnvægi og ég vil meina að ég sé að mestu búin að losa mig við viðkvæmnina, en það er ennþá eitt sem ég er að bíða eftir að það breytist til baka. Það er einbeitingin. Ég get ekki einbeitt mér að meiru en einu í einu, ef ég er að gera eitthvað og það er talað við mig á meðan, þá heyri ég einfaldlega ekki hvað er sagt! En kannski er þetta bara enn ein uppgötvunin sem bíður eftir mér einhversstaðar í náinni framtíð og ég verð bara að segja að það er æðislega gaman að fatta; "Já, bíddu ég var svona áður líka..."
Bloggar | 6.10.2007 | 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
| Maí 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 3218
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


matti-matt





